Þú veist hvað ég meina

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 21:37 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2005 kl. 21:37 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1996 1997 1998
Hljótt í vestri kveður kvöld,
kvikna eldar nætur.
Táp og kæti taka völd,
titra hjartarætur.
Dalsins lífi greiðum gjöld,
gleðin sanna lokkar.
Þráin vaknar þúsundföld,
þessi nótt er okkar.
Þú veist hvað ég meina mær,
munarblossar ginna.
Komdu þar sem freisting fær
fylling vona sinna.
Meðan nóttin framhjá fer,
fljóðið ástarblíða.
Inni í tjaldi, trúðu mér,
tækifærin bíða.
Vinnum ástarheitið hér,
hjörtun látum mætast.
Enginn veit og enginn sér
okkar drauma rætast.
Lag: Sigurjón Ingólfsson.
Texti: Guðjón Weihe