Á Þjóðhátíð
Fara í flakk
Fara í leit
Þjóðhátíðarlag | ||
1997 | 1998 | 1999 |
- Við erum öll á þjóðhátíð
- við erum öll á þjóðhátíð
- við gerum allt á þjóðhátíð
- allt sem við viljum
- Segja vil ég þetta þér
- þegar dans á völdin.
- Allra best ég uni mér
- inni í dal á kvöldin.
- Hér er bergið logum lýst,
- létt um bros hjá meyjum
- Þér mun líka það er víst,
- Þjóðhátíð í Eyjum
- Dátt um allan dalinn minn
- duna gleðiköllin.
- Glampa slær á gítarinn
- græna hlíð og fjöllin.
- Ævintýrin mest ég met
- meðan eldur brennur.
- Héðan ekki fer ég fet
- fyrr en dagur rennur
- Við erum öll á þjóðhátíð
- við erum öll á þjóðhátíð
- við gerum allt á þjóðhátíð
- allt sem við viljum
- Við syngjum öll á þjóðhátíð
- við dönsum öll á þjóðhátíð
- við gerum allt á þjóðhátíð
- allt sem við viljum
- Já hérna er gleði og gaman
- og gantast í tjöldum og hlíð.
- Hjá bálinu setið er saman
- og sungið á þjóðhátíð
- Við erum.....
- Lag: Geirmundur Valtýsson
- Texti: Guðjón Weihe og Geirmundur Valtýsson