Blik 1937, 1. tbl./Vilji nemendanna

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. nóvember 2013 kl. 10:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. nóvember 2013 kl. 10:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1937



VILJI NEMENDANNA


Nemendur Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum gerðu með sér svofellda samþykkt á fundi sínum 21. febrúar s. l.
1. Nemendur skólans allir sem einn, vilja gera sitt fremsta til að efla starf skólans í framtíðinni, og hvetja unglinga til þess að sækja hann og rækja, þar sem þeir álíta hann í alla staði þess verðan.
2. Nemendunum er útgáfa skólablaðsins „Bliks“ metnaðarmál, og vilja gera allt, sem í þeirra valdi og mætti stendur til þess að hjálpa kennurum skólans til um útgáfu þess.
3. Nemendur álíta, að þeir, sem auglýsa í blaðinu, séu velgerðarmenn nemendafélagsins og skólans, þar sem þeir með auglýsingunum veita blaðinu fjárhagslegan stuðning. Nemendur tjá þessum mönnum bestu þakkir sínar og álykta, að þeir geti ekki á annan hátt betur endurgoldið þeim stuðninginn en að minnast velvilja þeirra eftir megni, þegar nemendur í orði eða verki geta haft áhrif á viðskipti heimila sinna.

Í stjórn M.G. í Ve.
Baldur Þorgilsson,
Erla Ísleifsdóttir, Sigr. Bjarnad.