Blik 1936, 3. tbl./Sjómannskonan

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. október 2010 kl. 20:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. október 2010 kl. 20:48 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Blik 1936/Sjómannskonan færð á Blik 1936, 3. tbl./Sjómannskonan)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1936


Sjómannskonan


Ein í svölum aftanblænum
úti sjómannskonan stóð;
mann sinn á hún úti á sænum,
ötull fiskar hann á lóð;
fjögur á hún börn í bænum,
björt á svip og æskurjóð.


Ef að vindur ólmur þýtur,
eða dökknar himinninn,
svefns né værðar vart hún nýtur,
var svo og í þetta sinn.
Andvarpandi upp hún lítur:
»Æ, hve syrtir, drottinn minn!«


Öldur dans með ströndum stíga,
stormur þeytti lúður sinn.
Og í hafið hlaut ad síga
hlaðinn fiskibáturinn.
Bylgjur rísa, bylgjur hníga,
beljar næturvindurinn.


Ein í svölum aftanblænum
ekkjan föl og döpur stóð.
Fjögur á hún börn í bænum,
björt á svip og æskurjóð.
Er sem hver ein alda á sænum
ymji henni sorgarljóð.
Sigurbjörn Sveinsson.