Blik 1958/Gjafir til Gagnfræðaskólans

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2010 kl. 20:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2010 kl. 20:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1958



Gjafir til Gagnfræðaskólans


S.l. vetur gaf Ragnar Jónsson, bókaútgefandi í Rvík, Gagnfræðaskólanum bókagjöf að verðmæti kr. 2.400. — Fékk skólastjóri sjálfur að velja bókasafni skólans bækurnar.
Þegar gagnfræðadeild skólans var slitið 9. febrúar s.l., færði sóknarnefnd Landakirkju Gagnfræðaskólanum að gjöf hina forkunnarfögru, ljósprentuðu útgáfu af Guðbrandarbiblíu. Formaður sóknarnefndar, Páll Eyjólfsson, mun hafa átt hugmyndina að þessari gagnmerku gjöf til Gagnfræðaskólans. — Séra Halldór Kolbeins hafði orð fyrir sóknarnefnd og afhenti gjöfina. Jafnframt flutti prestur tvö frumsamin kvæði til Gagnfræðaskólans. Eru þau bæði birt hér í ritinu.
Fyrir allar þessar gjafir til skólans og það vinarþel, er að baki þeim felst, þakka ég alúðlega og færi gefendunum mínar beztu og innilegustu árnaðaróskir.

Þ.Þ.V.