Blik 1962/Allra heill

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. mars 2010 kl. 15:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. mars 2010 kl. 15:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Blik 1962/Allra heill“ [edit=sysop:move=sysop])
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1962



Allra heill



Allra heill.
Lag: Ísafold orkusmá.
Allra heill! — hugsjón vor,
skráð á vora skildi bjarta,
skráð í huga, sál og hjarta.
Allra heill er hugsjón vor!
Að því marki áfram sækjum
í anda bróðurkærleikans.
Veitum fræðslu' er varðar gæfu sérhvers manns.


Sérhvers manns — heilsu og heill,
og að þjóðar hag vér hyggjum,
heimilanna velferð tryggjum,
ef vér stundum allra heill,
minnumst þeirra, er vér unnum,
æskumönnum réttum hönd,
söfnum liði, og tengjum fast vor félagsbönd.


Allra heill! — Áfram þá
undir þessu fagra merki,
sigurviljinn sóknarsterki
settu marki víst skal ná!
Alltaf vonglöð einum huga.
eflast skal vor fríða sveit.
Dagur sigurs nálgast meir en nokknr veit.
Þýdd — P.S.

Þessi erindi hefur Pétur Sigurðsson, ritstjóri Einingarinnar, þýtt og sent Bliki. Hann hefir frá upphafi verið dyggur vinur þess, hughlýr og hallkvæmur. Við þökkum alúðlega þessa hvatningu til manndóms og dáða æskulýð Eyjanna. Þ. Þ. V.