Blik 1976/Kirkjubæjarjarðirnar, mynd

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. nóvember 2009 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. nóvember 2009 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Kirkjubæjarjarðirnar Kirkjubæjarjarðirnar í Vestm.eyjm voru 8.

Kirkjubæjarjarðirnar í Vestmannaeyjum voru 8. Á þessari mynd sjást íbúðarhúsin á þrem bæjum. Á miðri mynd blasir við íbúðarhús hjónanna frú Helgu Þorsteinsdóttur og Þorbjarnar bónda Guðjónssonar ásamt hlöðu og verkfærahúsi. Til vinstri við íbúðarhús þeirra hjóna stendur íbúðarhúsið á svokölluðum Mið-Hlaðbæ, hús frú Guðrúnar Hallvarðsdóttur og Jóns Valtýssonar bónda, og svo barna þeirra. - Til hægri á myndinni sést á þekju íbúðarhúss frú Lilju Sigfúsdóttur og Péturs bónda Guðjónssonar, - ber yfir fjósþakið. - Allar þessar byggingar brunnu til ösku eða fóru undir hraun í byrjun eldgossins í janúarlok 1973.