Hundraðmannahellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 09:57 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 09:57 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Hundraðmannahelli má finna með þessari miðun: Hanahöfuð við Halldórsskoru og Hástein í Dönskutó. Hellirinn er stuttan spöl frá Hamarsvegi. Hann er frekar langur og fremur lágur til lofts. Ekki er hægt að ganga inn um hann heldur þarf að skríða. Innst er hann þó næstum því það hár að hægt sé að ganga uppréttur.

Nafnið er komið frá tyrkjaráninu en sagt er að hundrað manns hafi falið sig í honum. Ekki er það þó líklegt því erfitt hefði að koma svo mörgum í þennan helli.

Heimildir

  • Ferðabók F.Í. 1948 bls. 119-124