Blik 1974/Gæfan elti góða drengi, erindi

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. maí 2010 kl. 20:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. maí 2010 kl. 20:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Efnisyfirlit 1974


Oddgeir Kristjánsson, hinn mikli tónlistarsnillingur okkar Eyjamanna, hafði nemendur mína að mestum hluta í hljómsveit sinni, Lúðrasveit Vestmannaeyja. Eitt sinn, er hljómsveitin hafði leikið fyrir okkur af list sinni, lá þetta erindi í hugskoti mínu:


Gæfan elti góða drengi,
glaða og reifa á listavengi;
þeim sé menntin máttur hreinn.
Blási þeir í lúðra lengi,
list þeirra svo enginn rengi;
hinn mesti sómi Eyja einn.
Þ. Þ. V.