Hátíðir
Vestmannaeyjar hafa liðið mikið fyrir einangrun sína í gegnum aldirnar, en Eyjamenn hafa ekki látið það eftir sér að sitja á strák sínum - hátíðir og uppákomur af öllum stærðargráðum eru á hverju strái þegar að Vestmannaeyjar eru annars vegar, og mikið er að gerast í Eyjum allt árið um kring. Vinsælt er meðal ferðamanna að sækja Eyjarnar heim þegar sérstakir viðburðir eru, en nokkrar bera af í vinsældum:
Þjóðhátíð í Eyjum
Þjóðhátíðin er haldin fyrstu helgi í ágúst. Hátíðin er af gömlum grunni eða frá því árið 1874 þegar að Íslendingar fjölmenntu á Þingvöllum í tilefni þúsund ára byggðar á Íslandi - sökum afkáralegs veðurs var ógjörningur fyrir Eyjamenn að sækja hátíðina, þannig að þeir sættu sig við að koma sér upp sinni eigin hátíð.
Í dag er þjóðhátíðin í Eyjum stór og mikil hátíð þar sem ÍBV íþróttafélag byggir upp ævintýralega smáborg í Herjólfsdal sem hverfur svo nánast sporlaust fjórum dögum síðar. Þar er boðið upp á tónlistarveislu þar sem vinsælustu hljómsveitir landsins hverju sinni stíga á stokk og gleðja hátíðargesti allan sólarhringinn. Flugeldasýning, brenna á fjósakletti og brekkusöngur er meðal þess sem boðið er upp á. Hin sérstæðu hvítu hústjöld setja líka sterkan svip sinn á dalinn þar sem heimamenn setja upp tjöldin sín á skipulagðan hátt þar sem að hver röð tjalda myndar götu og hvert tjald hefur númer eða nafn. Þar hafast menn við í gegnum allar tegundir veðurs og næra sig á lunda og kjötsúpu. Þar er oft á tíðum dvalið fram í dagrenningu við gítarspil og söng.
Goslokahátíðin
Goslokahátíðin er haldin hátíðleg fyrstu helgina í júlí. Þá er goslokanna á Heimaey minnst með Harmonikkuleik og öðru skralli í krónum í Skvísusundi. Þessi hátíð er ævið minni en Þjóðhátíðin en mun nánari og fjölskylduvænni - gamlir Eyjamenn snúa aftur frá meginlandinu til þess að endurnýja gömul kynni, og viðstöðulausri dagskrá er haldið uppi víða um bæinn með málverkasýningum, leikrænum tilburðum og öðrum listrænum gjörningum.
Íþróttaviðburðir
Shellmót og Vöruvalsmót
Peyja- og pæjumót í knattspyrnu eru haldin í júní þar sem yngri flokkar af öllu landinu hittast og keppa í fótbolta á Hásteinsvelli, Þórsvelli og Týsvelli. Mótin standa yfir í þrjá til fjóra daga og börnin fá einnig tækifæri til að upplifa margt það sem Eyjarnar hafa upp á bjóða, til dæmis spranga og fara í siglingu umhverfis Eyjuna og sjá svartfuglinn í berginu. Setningarhátíð pollamótsins hefur öðlast mikilvægan sess í hjörtum gestanna sem þar koma, enda er nóg af skemmtilegum föstum liðum þar.
Golfævintýri
Golfævintýri er spennandi golfmót og golfkennsla fyrir börn og unglinga. Ævintýrið stendur í fimm daga og er öllum krökkum opið. [1]
Volcano open
Volcano open er stórt golfmót sem haldið er í byrjun júlí og er opið öllum - stundum hefur þetta golfmót runnið saman við goslokahátíðina með góðum árangri. Gjarnan er mjög fjölmennt á Volcano open, enda er fátt betra að gera á björtum degi í Júlí en að spila golf langt fram eftir nóttu.
Pysjuævintýri
Pysjuævintýrið hefst um miðjan ágúst. Lundapysjan flýgur í átt að ljósunum í bænum og brotlenda milli húsanna og kunna sér engar undankomuleiðir — sagt er að Lundi geti ekki flogið nema að hann sjái til sjávar.
Þá hefst hið mikla og skemmtilega ævintýri barna og fullorðinna að bjarga pysjunum frá siðmenningu manna. Börn og fullorðnir labba um bæinn seint á kvöldin með vasaljós og kassa undir hendinni í von um að finna pysjur. Næsta dag er pysjunum sleppt í fjörunni þar sem hún syndir út og kafar eftir æti. Þá hefur pysjunum verið bjargað.
Lundaball
Lundaballið er haldið í september ár hvert, en þá mætast lundaveiðimenn allra eyjanna og halda saman uppskeruhátíð. Félögin um hverja úteyju eða veiðistað skiptast á að halda ballið og er mikill metnaður lagður í að toppa ballið frá árinu áður. Á Lundaböllum er boðið upp á lunda með alls kyns matreiðsluaðferðum en einnig er boðið upp á annars konar villibráð. Lundaböll voru hér áður fyrr einungis fyrir lundaveiðimenn og þeirra frúr en hafa á síðari árum verið opin öllum.
Þrettándinn
Þrettándi og síðasti dagur jóla er haldinn hátíðlegur í Vestmannaeyjum. Þrettándaganga er farin um bæinn í fylgd Grýlu, Leppalúða, jólasveinanna og ýmissa skelfilegra trölla, en samkvæmt hefðinni hefst hún nálægt skiphellum þar sem að jólasveinarnir koma niður af Hánni. Gangan heldur þaðan upp á stóra malarvöllinn undir Löngulág. Þar er dansað í kringum brennu með álfum, púkum og alls kyns kynjaverum. Að lokum eru jólin kvödd um miðnætti með flugeldasýningu.