Guðmundur Jóelsson (Háagarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. mars 2009 kl. 09:39 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. mars 2009 kl. 09:39 eftir Inga (spjall | framlög) (Gísli frá Bessastöðum)
Fara í flakk Fara í leit
Guðmundur, til vinstri, ásamt Áslaugi Stefánssyni.

Guðmundur Eyjólfur Jóelsson frá Háagarði fæddist 5. janúar 1907 og lést 14. september 1965. Hann var sonur Jóels Eyjólfssonar og Þórdísar Guðmundsdóttur frá Vesturhúsum. Bræður Guðmundar voru Þorgeir og Edvin, báðir formenn. Kona Guðmundar var Laufey Sigurðardóttir fædd 19/10 1910, dáin 15/6 1995. Þau bjuggu 12 ár í Skálavík [1934-1946] í Fáskrúðsfirði og eignuðust 9 börn. Sigurbjörg Bára f.1929, d.1948, Þórdís f.1931, Jóel f.1936,vélstjóri og skipstjóri drukknaði 4/3 1981, Bjarni f.1938, drukknaði 4/3 1981, trilluformaður og formaður með m/b Bárum, sem þeir bræður áttu, drengur f.1942 d. sama ár, Þorgeir f. 1944, Unnar f.1947, Ómar f.1953, Ingibjörg f. 1958, drukknaði í Vilpu 1960.

Óskar Kárason samdi formannavísu um Guðmund:

Annan skal ygginn hranna
ennþá við Jóel kenna.
Guðmundur strauminn stundar
stinnur sá gyrnung finnur.
Þristinum þjónar lista
þundur, sem miðin grundar.
Skak iðkar sjós í svaka
sannlega beimur hranna.

Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.