Gíslholt

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 15:31 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. júlí 2007 kl. 15:31 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Gíslholt og Skálholt.

Húsið Gíslholt stóð við Landagötu 20. Þar bjó allt til goss með fjölskyldu sinni, Ólafur Vigfússon, formaður á Skúla fógeta VE um fjöldamörg ár, Eyfellingur að ætt. Ólafur stundaði ávallt búskap með sjómennskunni, var bæði með kýr og kindur. Frá Ólafi er kominn stór ættbogi Vestmannaeyinga og kennir sú ætt sig alla jafna við Gíslholt. Dóttir Ólafs Kristný bjó með föður sínum í Gíslholti þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973. Húsið fór undir hraun.

Landagata 18 og 20. Hallgrímur Tryggvason tekur þarna sveiflu.

Í Gíslholti bjó m.a. Guðjón Ólafsson bæjarlistamaður í Vestmannaeyjum, sonur Ólafs.



Heimildir