Forsíða

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. mars 2026 kl. 09:22 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. mars 2026 kl. 09:22 eftir Frosti (spjall | framlög) (Víglundur Þór Þorsteinsson)
Fara í flakk Fara í leit
Víglundur Þór Þorsteinsson

Víglundur Þór Þorsteinsson læknir fæddist 24. júlí 1934 og ólst upp í Eyjum. Hann lést 20. febrúar 2026. Víglundur hefur skrifað þúsundir æviskrár um Eyjafólk á Heimaslóð ásamt því að setja inn Blik á stafrænu formi inn og fleiri þúsundir annarra greina og eru honum færðar kærar þakkir fyrir einstakt framlag til varðveislu sögu og menningar Vestmannaeyja.

1973 Allir í bátana á Heimaslóð

Einstakt björgunarafrek á heimsvísu var þegar íbúar Vestmannaeyja voru fluttir á brott frá Heimaey 23.janúar 1973 Nú hafa verið skráðar upplýsingar með hvaða hætti íbúar flúðu Eyjuna eða alls, 5.049 manns, 2.630 karlar og 2.369 konur auk 50 ófæddra barna sem voru í móðurkviði þann 23.janúar 1973.

Fólkið fór frá Eyjum með 58 bátum og skipum, flugi eða varð lengur í Eyjum þessa nótt. Að auki komu a.m.k. þrír bátar til Eyja um morguninn til að sækja fólk en fóru farþegalausir til baka. Skráð hefur verið hvar sérhver farþegi var búsettur á þeim tíma og með hvaða báti hann fór og hverjir voru í áhöfn þess báts auk þess hverjir fóru með flugi.

Ingibergur Óskarsson hefur unnið þrekvirki við að safna upplýsingum um flóttann mikla frá Heimaey 23. janúar 1973 og eru upplýsingarnar nú aðgengilegar á 1973 Allir í bátana á Heimaslóð.


Mynd vikunnar
Grein vikunnar

Lárus Jónsson bóndi, formaður og hreppstjóri í Kornhól og Syðri Búastöðum, fæddist 30. janúar 1839 og lézt 9. febrúar 1895, drukknaði.

Lesa meira

Heimaslóð hefur nú 40.345 myndir og 21.602 greinar.

Vinsamlegast sendið allar ábendingar og fyrirspurnir á netfangið heimaslod@vestmannaeyjar.is