Guðbjörn Ólafsson (Hólagötu 38)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2024 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2024 kl. 20:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðbjörn Ólafsson (Hólagötu 38)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörn Ólafsson, húsasmiður í Kópavogi fæddist 22. nóvember 1956.
Foreldrar hans Guðjón Ólafur Guðmundsson frá Bergstöðum við Urðaveg 24, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. nóvember 1928, d. 24. desember 1975, og kona hans Aðalbjörg Jónsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, f. 9. desember 1934, d. 18. nóvember 2001 á Lsp.

Barn Ólafs og Unnar Óskarsdóttur:
1. Óskar Elvar Guðjónsson, B.Sc.-stærðfræðingur frá Háskóla Íslands. Hann var lengi kennari við Menntaskólann við Sund, en er nú hugbúnaðarsérfræðingur hjá Advania, f. 20. apríl 1952. Kona hans er Hallbjörg Thorarensen leikskólakennari.
Börn Aðalbjargar og Ólafs:
2. Jón Sigurður Ólafsson, vélstjóri, húsasmiður í Reykjavík, f. 23. ágúst 1954.
3. Guðbjörn Ólafsson, húsasmiður í Kópavogi, f. 22. nóvember 1956 í Hafnarfirði.
4. Guðmundur Ólafsson, Baadermaður við fiskvinnslu í Noregi, f. 5. ágúst 1958.
5. Þóra Ólafsdóttir, húsfreyja, leiðbeinandi á leikskóla, f. 14. desember 1961.

Þau Hrafnhildur giftu sig, eignuðust tvö börn.

I. Kona Guðbjörns er Hrafnhildur Gísladóttir, húsfreyja, þroskaþjálfi, f. 4. október 1959 á Eyrarbakka. Foreldrar hennar Gísli Ragnar Gíslason, f. 31. janúar 1922, d. 10. október 1976, og Margrét Kristjánsdóttir, f. 10. apríl 1924, d. 2. nóvember 2013.
Börn þeirra:
1. Guðjón Ólafur Guðbjörnsson, f. 8. júlí 1979.
2. Rakel Guðbjörnsdóttir, f. 17. nóvember 1980.

{{Heimildir|


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.