Sævald Páll Hallgrímsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. nóvember 2024 kl. 16:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. nóvember 2024 kl. 16:25 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sævald Páll Hallgrímsson, vélfræðingur, framkvæmdastjóri Vélsmiðjunnar Þórs, fæddist 27. ágúst 1986.
Foreldrar hans Hallgrímur Tryggvason, vélvirkja- og plötusmíðameistari, f. 9. nóvember 1952, og kona hans Ásdís Sævaldsdóttir, húsfreyja, fjármálastjóri, f. 5. ágúst 1962.

Börn Ásdísar og Hallgríms:
1. Anna Rós Hallgrímsdóttir skólastjóri við grunnskóla í Eyjum, f. 17. desember 1981. Maður hennar Páll Þorvaldur Hjarðar.
2. Halla Björk Hallgrímsdóttir húsfreyja, fjármálastjóri í Eyjum, f. 5. september 1985. Maður hennar Karl Haraldsson.
3. Sævald Páll Hallgrímsson framkvæmdastjóri, f. 27. ágúst 1986. Kona hans Fjóla Sif Ríkharðsdóttir.
4. Einar Ottó Hallgrímsson sjómaður, stýrimaður í Eyjum, f. 26. september 1992. Kona hans Halla Björk Snædal Jónsdóttir.

Þau Fjóla Sif giftu sig, hafa eignast þrjú börn. Þau búa við Stóragerði 9.

I. Kona Sævalds Páls er Fjóla Sif Ríkharðsdóttir, húsfreyja, sjúkraliði, starfsmaðuur Heilsugæslunnar, f. 9. febrúar 1991.
Börn þeirra:
1. Ríkharður Páll Sævaldsson, f. 16. september 2014.
2. Ásdís Sævaldsdóttir, f. 18. nóvember 2017.
3. Nökkvi Páll Sævaldsson, f. 7. janúar 2022.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.