Ragna Ragnarsdóttir (Brimhólabraut)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2024 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2024 kl. 10:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ragna Ragnarsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Ragna Ragnarsdóttir, húsfreyja, skrifstofumaður fæddist 5. febrúar 1979 í Eyjum.
Foreldrar hennar Ragnar Þór Baldvinsson frá Steinholti við Kirkjuveg 9a, bifvélavirki, slökkviliðsstjóri, f. 31. desember 1945, og kona hans Anna Jóhannsdóttir frá Bjarmahlíð við Brekastíg 26, húsfreyja, f. 14. mars 1946.

Börn Önnu og Ragnars Þórs:
1. Jóhann Freyr Ragnarsson sjómaður, f. 13. ágúst 1965. Kona hans Júlía Ólöf Bergmannsdóttir, látin 2006. Kona hans Ingibjörg Andrea Brynjarsdóttir.
2. Hlíf Ragnarsdóttir hárgreiðslumeistari í Kópavogi, f. 5. ágúst 1967. Maður hennar Stefán Guðmundsson.
3. Þórunn Ragnarsdóttir, húsfreyja, skrifstofumaður, f. 11. desember 1976. Maður hennar Angantýr Einarsson.
4. Ragna Ragnarsdóttir, húsfreyja, skrifstofumaður, f. 5. febrúar 1979. Fyrrum maður hennar Smári Björn Þorvaldsson.

Þau Smári Björn hófu sambúð, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
Ragna býr við Brimhólabraut 15.

I. Fyrrum sambúðarmaður Rögnu er Smári Björn Þorvaldson, f. 21. desember 1979. Foreldrar hans Þorvaldur Elísson, f. 29. júní 1948, d. 7. febrúar 1989, og Edda Björk Hjörleifsdóttir, f. 12. október 1951.
Barn þeirra:
1. Þorvaldur Freyr Smárason, f. 3. mars 2011.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.