Ólafur Þór Gylfason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. ágúst 2024 kl. 14:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. ágúst 2024 kl. 14:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Ólafur Þór Gylfason“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Þór Gylfason, stjórnmálafræðingur, aðferða- og tölfræðingur, framkvæmdastjóri fæddist 26. ágúst 1970.
Foreldrar hans Gylfi Harðarson, vélstjóri, f. 7. júní 1943, d. 2. janúar 2003, og kona hans Birna Kristín Þórhallsdóttir, húsfreyja, f. 12. ágúst 1946, d. 10. febrúar 2019.

Börn Birnu og Gylfa:
1. Gylfi Anton Gylfason vélfræðingur, f. 19. apríl 1965. Kona hans Linda Hrönn Ævarsdóttir.
2. Ólafur Þór Gylfason, hefur BA-próf í stjórnmálafræði og M.Sc.-próf í aðferða- og tölvufræði, framkvæmdastjóri, f. 26. ágúst 1970. Kona hans Ingibjörg Arnarsdóttir.
3. Unnur Heiða Gylfadóttir húsfreyja, f. 8. febrúar 1972. Maður hennar Þröstur Friðberg Gíslason.
4. Bjarki Týr Gylfason bifreiðastjóri, f. 12. janúar 1980. Sambúðarkona hans Sigríður Reynisdóttir.

Þau Ingibjörg giftu sig 1996, eignuðust tvö börn. Þau búa í Garðabæ.

I. Kona Ólafs Þórs, 24. ágúst 1996), er Ingibjörg Arnarsdóttir, viðskiptafræðingur, með meistarapróf í fjármálum, fjármálastjóri, mannauðsstjóri, framkvæmdastjóri, f. 13. febrúar 1971.
Börn þeirra:
1. Agnes Birna Ólafsdóttir, f. 11. nóvember 2003.
2. Arnar Þór Ólafsson, f. 27. mars 2006.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.