Háigarður
Háigarður stóð við Austurveg og var talið til Vilborgarstaða fyrr á tímum. Hús þetta fór undir hraun í eldgosinu á Heimaey 1973.
Skýring við mynd til vinstri:
Háigarður um 1942. Hlaðan til hægri. Hlaðbær er fyrir austan Hágarð, síðan Skáli (Litli-Hlaðbær), Austari Vilborgarstaðir („Gústubær“), hús Lofts Jónssonar og Ágústínu Þórðardóttur austast. Elliðaey í baksýn. Myndin er tekinn af Svanhól (Oddnýjarhóli).