Jón Guðmundsson (sýslumaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. ágúst 2024 kl. 13:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. ágúst 2024 kl. 13:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Guðmundsson


Jón Guðmundsson var sýslumaður Vestmannaeyja frá 1798 til 1801. Foreldrar hans voru séra Guðmundur Jónsson að Krossi í Landeyjum og Guðrún Halldórsdóttir frá Stað í Steingrímsfirði. Jón stundaði nám í Skálholtsskóla í þrjá vetur, fór svo utan og tók stúdentspróf frá Hróarskelduskóla. Jón lauk prófi í lögum frá háskólanum í Kaupmannahöfn árið 1798. Hann fékk veitingu fyrir Vestmannaeyjasýslu sama ár og sat hana til ársins 1801. Hann fékk veitingu fyrir Vestur-Skaftafellssýslu árið 1801. Kona hans var Ragnhildur Guðmundsdóttir frá Fljótsdal. Þau bjuggu í Stakkagerði.
Börn þeirra:
1. Björn Jónsson, prestur, f. 1. febrúar 1806, d. 20. júlí 1967.
2. Guðrún Jónsdóttir, f. 15. júní 1808, d. 8. júlí 1834.
3. Margrét Jónsdóttir, f. 30. maí 1809, d. 14. júní 1862.
4. Anna Jónsdóttir, vinnukona í Norðurgarði, f. 8. febrúar 1813.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason. Eyjar gegnum aldirnar. Reykjavík, 1982.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.