Theódór Guðjón Jóhannesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. maí 2023 kl. 09:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. maí 2023 kl. 09:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Theódór Guðjón Jóhannesson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Theódór Guðjón Jóhannesson frá Hliðskjálfi í Patreksfirði, sjómaður fæddist 22. júní 1923 og lést 2. nóvember 2014.
Foreldrar hans voru Jóhannes Kristinn Þórarinsson, f. 17. ágúst 1893, d. 17. júlí 1946, og Estíva Sigríður Jakobsdóttir, f. 14. júní 1896, d. 13. september 1980.

Theódór var sjómaður.
Þau Kristín giftu sig 1954, eignuðust tvö börn og Theódór fóstraði barn Kristínar. Þau bjuggu við Nýjabæjarbraut 6, fluttu til Keflavíkur 1973, bjuggu þar í eitt og hálft ár, síðan að Reynigrund í Kópavogi. Þau skildu 1985.
Theódór lést 2014.

I. Kona Theódórs, (18. apríl 1954), var Kristín Sigurðardóttir frá Nýjabæ, húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður, f. 2. september 1925, d. 6. maí 2013.
Börn Kristínar og Theódórs:
1. Arnar Theódórsson bifvélavirki, f. 30. apríl 1957. Fyrrum sambúðarkona hans er Ásgerður Ingólfsdóttir. Fyrrum kona hans Margrét Eyjólfsdóttir. Fyrrum kona hans Anna Chernish frá Úkraínu.
2. Sigríður Hrönn Theódórsdóttir rekstarhagfræðingur, vinnur hjá Fjársýslu ríkisins, f. 2. febrúar 1962. Barnsfaðir hennar Ingi Þór Ásmundsson.
Barn Kristínar og fósturbarn Theódórs:
3. Sigurður Jóhann Ólafs skrifstofumaður, f. 20. nóvember 1946. Barnsmóðir hans Björg Bragadóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 24. maí 2013. Minning Kristínar.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sigríður Hrönn.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.