Páll Sigurðarson (vélvirki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. júlí 2023 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. júlí 2023 kl. 15:10 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Páll Sigurðarson.

Páll Sigurðarson frá Hraungerði í Árness., vélstjóri, járnsmiður fæddist 20. ágúst 1934.
Foreldrar hans voru Sigurður Pálsson prestur og vígslubiskup, f. 8. júlí 1901 í Haukatungu í Kolbeinsstaðahreppi, Hnapp., d. 13. júlí 1987, og kona hans Stefanía Gissurardóttir frá Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi, Árn., húsfreyja, f. 9. febrúar 1909, d. 13. september 1989.

Páll var með foreldrum sínum.
Hann lærði meðferð þungavinnuvéla í Bandaríkjunum, lærði, plötu- og ketilsmíði á Selfossi, tók hið minna vélstjórapróf á Akureyri 1953, varð síðar járnsmiður í Eyjum.
Hann var sjómaður á ýmsum vertíðarbátum og vann á búi foreldra sinna. Hann vann á Keflavíkurflugvelli. Þau Lára fluttu til Eyja þar sem hann stundaði sjómennsku og skipaviðgerðir. Þau fluttu síðan til Reykjavíkur þar sem Páll vann á ýmsum vélaverkstæðum og keyrði næturlækna í vitjanir. Auk þess átti Páll veghefil og rak fyrirtækið Veghefillinn hf. um 20 ára skeið. Síðustu ár sín vann hann garðyrkjustörf hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Fossvogsdal.
Páll söng í Selkórnum í nokkur ár og sat um skeið í sóknarnefnd Seltjarnarneskirkju.
Þau Halla giftu sig 1959, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu lengi við Látraströnd á Seltjarnarnesi.
Lára Halla lést 2022.

I. Kona Páls, (30. maí 1959), var Lára Halla Jóhannesdóttir frá Kirkjulundi, húsfreyja, talsímakona, skrifstofumaður, f. 25. október 1935, d. 9. júní 2022.
Börn þeirra:
1. Sigurður Pálsson húsasmiður, verslunarmaður, f. 24. ágúst 1960. Kona hans var Nanna Björk Filippusdóttir, látin.
2. Alda Pálsdóttir kennari, forstöðukona, f. 24. september 1961. Fyrrum maður hennar Helgi Örn Helgason.
3. Jóhannes Gunnar Pálsson dansari, fjársýslumaður, f. 26. nóvember 1963. Kona hans Hyeyoung Kim.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Morgunblaðið 19. júní 2023. Minning.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vélstjóra- og vélfræðingatal. Ritstjórar: Þorsteinn Jónsson og Franz Gíslason. Þjóðsaga 1996 og 1997.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.