Sigrún Ólafsdóttir (Litlabæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. október 2022 kl. 15:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. október 2022 kl. 15:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigrún Ólafsdóttir (Litlabæ)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Ólafsdóttir frá Litlabæ, húsfreyja á Hallormsstað fæddist 23. júlí 1924 og lést 21. mars 1948.
Foreldrar hennar voru Ólafur Ástgeirsson bátasmiður, sjómaður, f. 3. ágúst 1892, d. 8. apríl 1966, og fyrri kona hans Kristín Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. apríl 1885, d. 17. september 1943.

Sigrún var með foreldrum sínum í æsku.
Hún var verkakona.
Þau Þórarinn giftu sig 1947, eignuðust ekki börn. Þau bjuggu á Hallormsstað við Brekastíg 11a.
Sigrún lést 1948.

I. Maður Sigrúnar, (6. desember 1947), var Þórarinn Sigurðsson frá Hallormsstað, skipasmiður, skipaeftirlitsmaður, umdæmisstjóri, f. 24. febrúar 1925, d. 17. desember 1987.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.