Sveinn Hjörleifsson (Skálholti)
![](/images/thumb/5/59/Sveinn_Hj%C3%B6rleifsson.jpg/250px-Sveinn_Hj%C3%B6rleifsson.jpg)
Sveinn Hjörleifsson fæddist 1. ágúst 1927 og lést 4. janúar 2004. Foreldrar hans voru Hjörleifur Sveinsson og Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir í Skálholti. Hann bjó lengst af að Höfðavegi 2 en var ávallt kenndur við æskuheimili sitt, Skálholt sem og bát sinn Kristbjörgu VE.
Sveinn var skipstjóri og útgerðarmaður, auk þess sem hann var hrossabóndi.
![](/images/thumb/5/58/Gos61.jpg/250px-Gos61.jpg)
Óskar Kárason samdi formannavísu um hann:
- Svein Hjörleifs glöggt ég greini,
- graminn ungan og framan.
- Kristbjörgu verinn vistar
- víða á sjónum stríða.
- Orku með öldum storkar,
- uggling þá bana bruggar.
- Klettana klifar nettur
- kappinn lítt hjarta-slappi.
Heimildir
- Óskar Kárason. Formannavísur II. Vestmannaeyjum, 1956.