Ás
Húsið Ás var byggt árið 1903 og stendur við Kirkjuveg 49. Þar bjó lengi vel Sighvatur Bjarnason (Sighvatur í Ási), skipstjóri og útgerðarmaður, ásamt konu sinni, Guðmundu Torfadóttur og börnum þeirra. Nú búa í Ási Bragi Ólafsson (Bragi á Fluginu) og kona hans Laufey Bjarnadóttir. Fengu þau viðurkenningu árið 2006 frá Umhverfissviði bæjarins og Rotaryklúbbnum fyrir endurbætur til fyrirmyndar.