Björg Sveinsdóttir (Stórhöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. mars 2022 kl. 11:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. mars 2022 kl. 11:34 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Björg Sveinsdóttir (Stórhöfða)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Björg Sveinsdóttir frá Hofi í Álftafirði, S-Múl., húsfreyja í Stórhöfða fæddist 6. maí 1911 og lést 19. júní 1964.
Foreldrar hennar voru Sveinn Sveinsson bóndi, f. 26. október 1867, d. 6. apríl 1945, og kona hans Kristín Antoníusdóttir húsfreyja, f. 31. janúar 1873, d. 19. júní 1942.

Björg var með foreldrum sínum á Hofi í æsku.
Þau Sigurður giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Stórhöfða.

I. Maður Bjargar var Sigurður Valdimar Jónatansson vitavörður, f. 3. desember 1897, d. 4. maí 1966.
Börn þeirra:
1. Óskar Jakob Sigurðsson vitavörður, f. 19. nóvember 1937 í Stórhöfða. Sambúðarkona hans Valgerður Benediktsdóttir, látin.
2. Erla Kristín Sigurðardóttir húsfreyja, f. 21. ágúst 1943 í Stórhöfða. Maður hennar Gunnar Ólafsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.