Sigurjón Ólafsson (Höfðabrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. janúar 2022 kl. 21:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. janúar 2022 kl. 21:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigurjón Ólafsson (Höfðabrekku)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigurjón Ólafsson á Höfðabrekku og víðar, sjómaður, útgerðarmaður fæddist 17. febrúar 1894 á Núpi u. Eyjafjöllum og lést 7. júní 1964.
Foreldrar hans voru Ólafur Ketilsson bóndi á Núpi, f. 24. júlí 1859, d. 24. maí 1943, og kona hans Ingibjörg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 18. maí 1865, d. 27. október 1936.

Sigurjón var með foreldrum sínum í æsku.
Hann flutti til Eyja 1914, var sjómaður og útgerðarmaður.
Þau Guðlaug giftu sig 1917, eignuðust tvö börn og fóstruðu eitt barn. Þau bjuggu í fyrstu á Hólum við Hásteinsveg 41, á Höfðabrekku við fæðingu Einars 1920 og við fæðingu Ólafs 1928, en bjuggu síðan á Vestmannabraut 74.
Sigurjón lést 1964.
Guðlaug bjó síðast með Ólafi syni sínum á Hólagötu 45. Hún lést 1990.

I. Kona Sigurjóns, (10. nóvember 1917), var Guðlaug Einarsdóttir frá Raufarfelli u. Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 28. september 1892, síðast á Hólagötu 45, d. 28. október 1990.
Börn þeirra:
1. Einar Þorberg Sigurjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, forstjóri, f. 7. janúar 1920 á Höfðabrekku, d. 14. október 1998.
2. Ólafur Sigurjónsson sjómaður, vélstjóri, f. 9. janúar 1928 á Höfðabrekku, d. 5. maí 2008.
Fósturbarn hjónanna var
3. Klara Jóhannesdóttir, f. 27. september 1909 á Seyðisfirði, d. 23. janúar 1923 á Höfðabrekku. Foreldrar hennar voru Jóhannes Sveinsson og Elín Júlíana Sveinsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.