Egill Guðni Guðnason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. desember 2021 kl. 14:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. desember 2021 kl. 14:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Egill Guðni Guðnason“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Egill Guðni Guðnason frá Eskifirði, sjómaður, stýrimaður fæddist 4. maí 1969 í Reykjavík.
Foreldrar hans Guðni Þór Gunnarsson vélstjóri á Eskifirði, f. þar 19. febrúar 1944, og kona hans Jóhanna Andrea Ólafsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður á Eskifirði, f. 25. maí 1944 í Reykjavík.

Egill Guðni lauk prófum í Stýrimannaskólanum í Reykjavík, flutti til Eyja 1998.
Hann hefur verið á ýmsum skipum í Eyjum, er nú á Vestmannaey VE.
Þau Svanhvít giftu sig 2000, eiga eitt barn. Þau bjuggu á Túngötu 16, en búa nú á Ægisgötu 2.

I. Kona Egils Guðna, (1. ágúst 2000), er Svanhvít Friðþjófsdóttir húsfreyja, M.ed., grunnskólakennari, deildarstjóri, f. 29. september 1965.
Barn þeirra:
1. Urður Eir Egilsdóttir nemi í Háskóla Íslands, f. 3. júlí 2001.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.