Hallgrímur Þórðarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. september 2026 kl. 13:14 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. september 2026 kl. 13:14 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Hallgrímur Þórðarson og kona hans, Guðbjörg Einarsdóttir.

Hallgrímur Þórðarson var fæddur 7. febrúar 1926 og lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 8. október 2013.. Kona hans var Guðbjörg Einarsdóttir. Þau bjuggu á Urðavegi 42 og á Heiðarvegi 56.

Hallgrímur rak Veiðarfæragerð Vestmannaeyja í fjöldamörg ár ásamt frænda sínum Guðjóni Magnússyni.

Hallgrímur var mikill söngmaður og tók virkan þátt í sönglífi í Vestmannaeyjum í áratugi. Hann var í Samkór Vestmannaeyja og síðan í Kór Landakirkju. Hann var einnig í veiðifélagi Ystakletts og dvaldi við lundaveiði stærstan hluta lundaveiðitímans.

Myndir