Rútur Snorrason (Steini)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. september 2021 kl. 14:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. september 2021 kl. 14:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Rútur Snorrason“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Aðalsteinn Rútur Snorrason.

Aðalsteinn Rútur Snorrason kaupmaður, verslunarstjóri fæddist 26. apríl 1918 í Steini við Vesturveg og lést 18. ágúst 2001 í Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð á Vífilsstöðum.
Foreldrar hennar voru Snorri Þórðarson útvegsbóndi, f. 16. mars 1881 í Steig í Mýrdal, drukknaði 16. desember 1924, og kona hans Þorgerður Jónsdóttir húsfreyja, forstöðukona, f. 15. nóvember 1880, d. 19. júní 1939.

Börn Þorgerðar og Snorra voru:
1. Þuríður, f. 3. maí 1913, d. 20. september 2003.
2. Aðalheiður Margrét, f. 29. október 1914, d. 29. nóvember 2016.
3. Aðalsteinn Rútur, f. 26. apríl 1918, d. 18. ágúst 2001.

Rútur nam verslunarfræði við Verslunarskóla Íslands.
Hann stundaði alla almenna verkamannavinnu í æsku. Að loknu verslunarprófi gerðist hann meðeigandi Raftækjaverslunar Haraldar Eiríkssonar hf. og síðar eignaðist hann helmingshlut í versluninni Turninum. Hann rak þær ásamt meðeigendum til Goss 1973.
Rútur rak um skeið með sameiganda raftækjaverslunina Raflúx í Reykjavík. Síðan rak hann söluturn með sama nafni.
Þau Ingveldur giftu sig 1951, eignuðust þrjú börn. Þau leigðu í fyrstu á Vesturvegi 3, en fluttu fljótlega í eigið húsnæði við Sóleyjargötu 1 og bjuggu þar til Goss 1973.
Eftir flutning til Reykjavíkur bjuggu þau lengst við Háaleitisbraut, síðan í íbúð fyrir eldri borgara við Dalbraut, en síðast í Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Holtsbúð á Vífilsstöðum.
Rútur lést 2001 og Ingveldur 2012.

I. Kona Rúts, (29. september 1951), var Ingverldur Jónína Þórðardóttir húsfreyja, f. 1. október 1922, d. 2. febrúar 2012.
Börn þeirra:
1. Snorri Þorgeir Rútsson, f. 10. febrúar 1953. Kona hans Hrefna Baldvinsdóttir.
2. Jónína Rútsdóttir húsfreyja, f. 6. júní 1955. Maður hennar Jón Pétur Jónsson.
3. Gylfi Þór Rútsson, f. 6. ágúst 1962. Kona hans Ágústa Kristjánsdóttir. ---- Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.