Jóhanna Kristjánsdóttir (Holti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. september 2020 kl. 14:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. september 2020 kl. 14:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Jóhanna Kristjánsdóttir (Holti)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Kristín Kristjánsdóttir frá Flatey á Skjálfanda, húsfreyja fæddist í Vík þar 3. nóvember 1921 og lést 12. október 1996.
Foreldrar hennar voru Kristján Rafnsson frá Hóli í Köldukinn, S-Þing., útvegsbóndi í Vík og Nýjabæ í Flatey, f. 6. júní 1882, drukknaði 19. maí 1938, og kona hans Sigríður Sigtryggsdóttir frá Neðribæ í Flatey, f. þar 9. janúar 1894, d. 28. febrúar 1985.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku. Hún var um skeið í vist á Húsavík og stundaði þjónustustörf uns hún kynntist Guðlaugi á Siglufirði.
Í Reykjavík vann hún í mötuneyti Hótel Loftleiða frá 1974.
Þau Guðlaugur giftu sig 1943, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu í Holti, síðan á Helgafellsbraut 1. Þau byggðu húsið að Kirkjubæjarbraut 1 og bjuggu þar, uns þau fluttu til Reykjavíkur 1960, en bjuggu þar að Austurbrún 3, en síðast að Kjarrvegi 15.
Jóhanna bjó að síðustu að Eiðismýri 30 í íbúð fyrir aldraða.
Guðlaugur lést 1989 og Jóhanna 1996.

I. Maður Jóhönnu Kristínar, (6. nóvember 1943), var Guðlaugur Vigfússon sjómaður, útgerðarmaður frá Holti, f. 16. júlí 1916, d. 27. apríl 1989.
Börn þeirra:
1. Kristján Vigfús Guðlaugsson, f. 15. desember 1943 í Holti. Kona hans Rósa Sigurjónsdóttir.
2. Guðleif Guðlaugsdóttir, f. 28. október 1948 á Helgafellsbraut 1. Maður hennar Páll H. Guðmundsson.
3. Sigríður Guðlaugsdóttir, f. 27. mars 1951 að Kirkjubæjarbraut 1. Maður hennar Gústav Einarsson.
4. Kristján Guðlaugsson, f. 31. desember 1954 að Kirkjubæjarbraut 1. Kona hans Ásgerður Halldórsdóttir.
5. Guðrún Guðlaugsdóttir, f. 9. ágúst 1959 að Kirkjubæjarbraut 1. Sambýlismaður Helgi Gunnarsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.