Guðleif Guðlaugsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðleif Guðlaugsdóttir, húsfreyja, verslunarmaður fæddist 28. október 1948.
Foreldrar hennar voru Guðlaugur Vigfússon (Daddi í Holti) sjómaður, útgerðarmaður, netamaður, f. 16. júlí 1916, d. 27. apríl 1989, og kona hans Jóhanna Kristín Kristjánsdóttir frá Flatey á Skjálfanda, húsfreyja, f. 3. nóvember 1921, d. 12. október 1996.

Börn Jóhönnu og Guðlaugs:
1. Kristján Vigfús Guðlaugsson, f. 15. desember 1943 í Holti. Kona hans Rósa Björg Sigurjónsdóttir.
2. Guðleif Guðlaugsdóttir, f. 28. október 1948 á Helgafellsbraut 1. Maður hennar Páll H. Guðmundsson.
3. Sigríður Guðlaugsdóttir, f. 27. mars 1951 að Kirkjubæjarbraut 1. Maður hennar Gústav Einarsson.
4. Kristján Guðlaugsson, f. 31. desember 1954 að Kirkjubæjarbraut 1. Kona hans Ásgerður Halldórsdóttir.
5. Guðrún Guðlaugsdóttir, f. 9. ágúst 1959 að Kirkjubæjarbraut 1. Maður hennar Helgi Gunnarsson.

Þau Páll giftu sig, eignuðust tvö börn og fóstruðu barn Guðrúnar systur Guðleifar.
Þau búa á Lækjarbakka í V.-Landeyjum.

I. Maður Guðleifar er Páll H. Guðmundsson, rekur Orku, f. 15. september 1947. Foreldrar hans Guðmundur Guðmundsson, f. 19. júlí 1924, d. 12. nóvember 1972, og Jóna Guðbjörg Guðmundsdóttir, f. 13. desember 1920, d. 21. júlí 2002.
Börn þeirra:
1. Guðlaugur Pálsson, f. 24. september 1966.
2. Arnþór Pálsson, f. 24. desember 1970.
Fósturbarn, barn Guðrúnar systur Guðleifar og Halldórs Jóhannssonar:
3. Daníel Stefán Halldórsson, f. 29. október 1980.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.