Guðríður Guðmundsdóttir (Viðey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. ágúst 2023 kl. 09:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. ágúst 2023 kl. 09:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Guðríður Guðmundsdóttir.

Guðríður Guðmundsdóttir frá Viðey, húsfreyja í Reykjavík fæddist 16. desember 1915 á Ytra-Hóli í V-Landeyjum og lést 29. maí 2011 á Hrafnistu í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Einarsson frá Bjólu í Djúpárhreppi, Rang., bóndi, útgerðarmaður í Viðey, f. 18. nóvember 1885 í Rifshalakoti í Ásahreppi, Rang., d. 14. mars 1943 í Eyjum, og kona hans Pálína Jónsdóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1880 í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, d. 6. mars 1963 í Reykjavík.

Börn Pálínu og Guðmundar:
1. Guðmunda Pálína Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 8. júlí 1908, d. 24. desember 1987. Maður hennar var Adolph Lauritz Hólm.
2. Jónína Þórunn Guðmundsdóttir, f. 1. desember 1909, d. 19. júní 1910.
3. Karl Óskar Guðmundsson skipstjóri, f. 6. apríl 1911, d. 16. janúar 1986.
4. Jón Óskar Guðmundsson bóndi í Norður-Nýjabæ í Djúpárhreppi, Rang., síðar smiður í Reykjavík, f. 30. mars 1912, d. 17. mars 2009. Hann var fóstraður hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Kona hans var Sigurbjörg Gísladóttir.
5. Ármann Óskar Guðmundsson útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 28. maí 1913, d. 3. júlí 2002.
6. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir húsfreyja, kennari á Flateyri, f. 2. ágúst 1914, d. 26. apríl 2006.
7. Guðríður Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. desember 1915, d. 29. maí 2011.
8. Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja í Viðey, f. 19. apríl 1917, d. 14. október 1998.
9. Þórunn Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júlí 1918, d. 2. janúar 2012. Hún var fóstruð hjá Jóni Jónssyni og Þórunni Pálsdóttur móðurforeldrum sínum í Norður-Nýjabæ. Maður hennar var Óskar Pálsson.
10. Geir Óskar Guðmundsson véltæknifræðingur í Reykjavík, f. 18. desember 1920, d. 5. október 1991.
11. Sigurður Óskar Guðmundsson verkamaður í Viðey, f. 25. mars 1922, d. 27. janúar 1980.
12. Kristinn Óskar Guðmundsson lögfræðingur, bæjarstjóri, f. 2. nóvember 1924, d. 26. febrúar 2011.
Börn Guðmundar Einarssonar og Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu, f. 11. desember 1891, d. 13. janúar 1957:
13. Aðalheiður Guðmundsdóttir verslunarmaður í Reykjavík, f. 25. nóvember 1919, d. 5. ágúst 2008. Hún var ógift.
14. Guðbjörg Svava Guðmundsdóttir húsfreyja á Ísafirði, f. 16. september 1921, d. 22. desember 2007. Maður hennar var Ólafur Markús Guðjónsson stýrimaður.
15. Ólafía Guðmundsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. september 1921, d. 17. apríl 1992.
Barn Guðmundar Einarssonar og Steinunnar Guðmundsdóttur vinnukonu á Bjólu í Djúpárhreppi:
16. Helgi Guðmundsson bóndi í Borgarholti í Stokkseyrarhreppi, f. 13. september 1902, d. 25. september 1932. Kona hans var Steinvör Jónsdóttir.
Uppeldisbróðir systkinanna, sonur Guðbjargar Erlendsdóttur vinnukonu er
17. Ragnar Hafliðason málarameistari, kaupmaður, f. 12. nóvember 1928 í Viðey, d. 3. desember 2019.

Guðríður var með foreldrum sínum á Ytra-Hóli og fluttist með þeim til Eyja 1921. Hún gekk í Kvennaskólann í Reykjavík, en var síðan foreldrum sínum til halds og trausts við útveg þeirra og landbúnað þangað til hún fluttist til Reykjavíkur og giftist Sveinbirni 1945.
Þau eignuðust þrjú börn, bjuggu lengst við Langholtsveg 144.
Sveinbjörn lést 1993 og Guðríður 2011.

I. Maður Guðríðar, (30. júní 1945), var Sveinbjörn Hafsteinn Pálsson úr Reykjavík, vélsmíðameistari og sérhæfður í húsaflutningum, f. 20. október 1910, d. 5. júlí 1993. Foreldrar hans voru Páll Ingvi Níelsson frá Laxholti í Borgarfirði, vélstjóri, f. 24. nóvember 1879, d. 5. ágúst 1934, og kona hans Elín Guðrún Þorsteinsdóttir frá Eystri-Skógum u. A-Eyjafjöllum, húsfreyja, f. 16. júlí 1881, d. 9. október 1971.
Börn þeirra:
1. Guðlaug Steinþóra Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 30. október 1945. Barnsfaðir hennar Stefán Sigurðsson. Maður hennar Þórður Kristjánsson.
2. Guðmunda Erla Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, f. 26. nóvember 1947. Maður hennar Gérard Vautey.
3. Kári Hafsteinn Sveinbjörnsson rafeindavirki, f. 17. júní 1949. Kona hans Íris Björnæs Þór.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.