Svala Guðmundsdóttir (Selsundi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. janúar 2023 kl. 16:50 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. janúar 2023 kl. 16:50 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Steinunn Svala Guðmundsdóttir og Sverrir Haraldsson.

Steinunn Svala Guðmundsdóttir húsfreyja og bóndi í Selsundi á Rangárvöllum fæddist 29. júní 1924 á Brekastíg 25 og lést 17. janúar 2007.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Gíslason múrari, síðar afgreiðslumaður, f. 19. október 1893 í Nýjabæ í Sandvíkurhreppi, d. 14. maí 1972, og kona hans Marta Þorleifsdóttir húsfreyja f. 11. júní 1897 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 6. apríl 1984.

Svala var með foreldrum sínum, en var í sveit á sumrin hjá skyldfólki á Ytri-Sólheimum í Mýrdal. Hún flutti til Reykjavíkur 1946 með foreldrum sínum.
Hún var við nám í Húsmæðraskólanum á Hallormsstað 1944-1945, lærði tungumál og umgekkst mikið erlenda ferðamenn, sem gistu í Selsundi. Hún stofnaði ásamt fleira fólki handverkshóp, sem kenndi sig við og starfaði í Þingborg.
Hún eignaðist barn með Hauki 1943.
Þau Sverrir giftu sig 1948, eignuðust fjögur börn og fóstruðu eitt barn. Þau bjuggu í fyrstu á Hólum á Rangárvöllum, býli foreldra hans, en á Selsundi á Rangárvöllum frá 1951.
Svala lést 2007.

I. Barnsfaðir Svölu var Haukur Matthíasson verslunarmaður, f. 18. ágúst 1917, d. 3. febrúar 1991.
Barn þeirra:
1. Steinunn Þórleif Hauksdóttir, f. 1. febrúar 1943. Maður hennar er Gunnar Benediktsson.

II. Maður Svölu, (31. janúar 1948), var Sverrir Haraldsson bóndi í Selsundi, f. 15. maí 1927 í Næfurholti á Rangárvöllum.
Börn þeirra:
2. Guðrún Sverrisdóttir húsfreyja, jarðfræðingur, f. 6. ágúst 1948 á Hólum á Rangárvöllum. Maður hennar Guðlaugur Hermannsson.
3. Haraldur Sverrisson skipstjóri, f. 15. júlí 1952 í Selsundi. Kona hans: Hugrún Magnúsdóttir húsfreyja, bréfberi, f. 10. maí 1958.
4. Martha Sverrisdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 6. apríl 1955 á Vegamótum á Seltjarnarnesi. Maður hennar Snorri Aðalsteinsson.
5. Guðmundur Sverrisson, f. 11. júlí 1958. Kona hans Guðbjörg Árnadóttir.
Fóstursonur þeirra:
6. Guðmundur Gíslason verkamaður , f. 9. september 1964 í Reykjavík. Hann er dóttursonur Svölu, sonur Steinunnar Þórleifar Hauksdóttur. Kona hans Björk Rúnarsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Lækjarbotnaætt. Sverrir Sæmundsson. Sögusteinn 1984.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 27. janúar 2007. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.