María Brynjólfsdóttir (Árbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. mars 2019 kl. 21:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. mars 2019 kl. 21:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „María Brynjólfsdóttir (Árbæ)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

María Brynjólfsdóttir í Árbæ, húsfreyja í Hallgeirseyjarhjáleigu í A-Landeyjum fæddist 1. febrúar 1905 í Syðri-Vatnahjáleigu þar og lést 16. apríl 1932.
Foreldrar hennar voru Brynjólfur Jónsson bóndi, síðar í Eyjum, f. 10. apríl 1857 á Önundarstöðum u. Eyjafjöllum, d. 15. júní 1932, og kona hans Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja, síðar í Eyjum, f. 9. ágúst 1874, d. 15. september 1959 á Siglufirði.

Börn Margrétar og Brynjólfs í Eyjum:
1. Jónheiður Magnea Brynjólfsdóttir, síðar húsfreyja á Akureyri, f. 16. september 1896, d. 15. júlí 1964.
2. Guðjón Brynjólfsson síðar skósmiður í Reykjavík, f. 11. apríl 1898, d. 4. júní 1984.
3. Guðni Brynjólfsson sjómaður í Árbæ, síðast í Keflavík, f. 18. maí 1903, d. 31. maí 1985. Kona hans var Þórhildur Sölvadóttir.
4. María Brynjólfsdóttir, síðar húsfreyja í Hallgeirseyjarhjáleigu, f. 1. febrúar 1905, d. 16. apríl 1932.
5. Þorgrímur Brynjólfsson, síðar kaupmaður í Reykjavík, f. 16. febrúar 1908, d. 27. desember 1994.
6. Jón Brynjólfsson sjómaður, síðar í Reykjavík, f. 4. maí 1913, d. 11. mars 1992.
7. Guðrún Brynjólfsdóttir, síðar húsfreyja í Hveragerði, f. 17. desember 1914, d. 15. desember 2010.

María fluttist til Eyja og eignaðist Karl Jóhann í Árbæ 1926.
Hún var með foreldrum sínum og nokkrum systkina sinna í Árbæ 1927 og með henni var barnið.
Hún fluttist í Landeyjar og bjó með Gunnari, eignaðist Svein Pál þar 1929.
Hún lést 1932.

I. Maður Maríu var Gunnar Vigfússon frá Flögu í Skaftártungu, bóndi og bókhaldari í Hallgeirseyjarhjáleigu, síðar skrifstofustjóri á Selfossi, f. 13. október 1902, d. 6. febrúar 1980.
Börn þeirra:
1. Karl Jóhann Gunnarsson, síðar í Vík, verslunarmaður, bóndi, f. 22. desember 1926 í Árbæ, d. 3. nóvember 2007. Kona hans var Oddný Guðbjörg Þórðardóttir húsfreyja frá Skálanesi.
2. Sveinn Páll Gunnarsson bóndi á Flögu í Skaftártungu, f. 4. mars 1929 í Hallgeirseyjarhjáleigu, d. 7. júlí 2003.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.