Árni J. Johnsen
Árni J. Johnsen fæddist í Vestmannaeyjum 13. október 1892 og lést árið 1963. Hann var sonur hjónanna Sigríðar Árnadóttur og Jóhanns Jörgens Johnsen útvegsbónda og hótel- og sjúkrahúshaldara í Vestmannaeyjum. Fyrri kona Árna var Margrét Jónsdóttir. Eignuðust þau 6 börn, Svölu húsfreyju í Suðurgarði, Ingibjörgu kaupkonu, Áslaugu hjúkrunarkonu og trúboða, Gísla sjómann, Hlöðver bankafulltrúa og Sigfús sem var kennari og formaður ungra Sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum. Margrét lést eftir 30 ára sambúð þeirra. Seinni kona Árna var Olga Karlsdóttir. Þau eignuðust Guðfinn og Jóhannes auk þess sem Olga átti fjögur börn fyrir.
Árni ólst upp á fjölmennu athafnaheimili. Faðir Árna hafði mörg járn í eldinum. Auk þess að halda hótel og sjúkrahús í Eyjum og einnig var á heimilinu bæði stunduð útgerð og landbúnaður.
Framan af stundaði Árni kaupmennsku, útgerð, búskap og margs konar umboðsstörf. Árni var félagslyndur og hjálpaði bágstöddum mikið. Árni var bindindismaður og var hann æðsti templari í stúkunni Sunnu samfleytt í 25 ár. Einnig var hann í forystusveit Sjálfstæðisflokksins um margra ára skeið. Árni var í fyrstu Lúðrasveit Vestmannaeyja og söng í kórum um 60 ára skeið.
Árni bjargaði alls 8 mönnum frá drukknum. Var hann sæmdum mörgum heiðursmerkjum og meðal annars hefur hann fjórum sinnum fengið verðlaun úr Carnegie-sjóðnum og verið sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar.
Heimildir
- Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1963.