Herborg Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. febrúar 2018 kl. 17:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. febrúar 2018 kl. 17:20 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Herborg Sigurðsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Herborg Sigurðsson frá Nólsey í Færeyjum, fædd Hansen, húsfreyja fæddist 16. janúar 1935.
Foreldrar hennar voru Hans Edvard Hansen, f. 1902, og kona hans Anna Katarina Sofia Hansen, fædd Thomsen húsfreyja, f. 1904.

Herborg kom til Eyja 1959, fiskvinnslukona, fluttist til Eyja 1960, giftist Trausta 1960, eignaðist þrjú börn.
Þau Trausti bjuggu fyrsta árið á Fagrafelli, Hvítingavegi 5, síðan eitt ár á Ásavegi 16. Þau keyptu Brimhólabraut 5 og bjuggu þar frá 1963 til Goss.
Þau búa nú á Kirkjusandi í Reykjavík.

I. Maður Herborgar, (30. ágúst 1960), er Trausti Sigurðsson frá Hæli, sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, stýrimaður, síðar starfsmaður ÍSALS í Straumsvík, f. 14. desember 1932.
Börn þeirra:
1. Soffía Traustadóttir húsfreyja, f. 7. janúar 1961. Maður hennar er Skúli Bergmann.
2. Bára Traustadóttir húsfreyja í Færeyjum, f. 2. júlí 1963. Maður hennar er Björn Elísson.
3. Sóley Traustadóttir öryrki, vistmaður á Skálatúnsheimilinu, f. 3. janúar 1965.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.