Sigríður Nikulásdóttir (Austurvegi 20)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. apríl 2021 kl. 11:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. apríl 2021 kl. 11:23 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Nikulásdóttir húsfreyja, Austurvegi 20, fæddist 18. júlí 1914 á Stokkseyri og lézt í Reykjavík 15. maí 1973.
Foreldrar hennar voru Nikulás bóndi í Gíslakoti í Ásahreppi, Rang., síðar formaður í Bræðraborg á Stokkseyri, f. 9. ágúst 1885 í Bergshúsi í Grindavík, d. 23. október 1953, Bjarna formanns á Stokkseyri, Nikulássonar, og kona Nikulásar, Filippía húsfreyja, f. 5. nóvember 1876 í Lindarbæ í Ásahreppi, d. 14. janúar 1930, Gestsdóttir frá Vetleifsholtsparti, Stefánssonar.

Börn Filippíu og Nikulásar í Eyjum voru:
1. Stefán Nikulásson sjómaður, stýrimaðu, síðar þingvörður, f. 6. júlí 1913, d. 7. ágúst 2001.
2. Sigríður Nikulásdóttir húsfreyja, f. 18. júlí 1914, d. 15. maí 1973.

Þau Sigurjón giftu sig 1939, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu á Haukabergi 1939 og enn 1942, í Höfða 1945, við Sjómannasund 1949.
Þau bjuggu á Austurvegi 20, nýbyggðu húsi sínu, frá 1950-Goss, er þau fluttust til Reykjavíkur.
Sigríður lést í maí 1973 og Sigurjón 2004.

I. Maður hennar, (16. september 1939), var Sigurjón Auðunsson vélstjóri, skipstjóri, verkstjóri, f. 4. apríl 1917, d. 20. febrúar 2004.
Börn þeirra Sigurjóns:
1. Gylfi skrifstofustjóri, f. 8. desember 1939 á Haukabergi.
2. Aðalsteinn bankastjóri, f. 27. marz 1942 á Haukabergi.
3. Ingibjörg bókari, f. 14. nóvember 1950 á Austurvegi 20.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.