Ögmundur Hannesson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. september 2017 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. september 2017 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ögmundur Hannesson, Hvoli, fæddur 16. mars 1911, dáinn 15.október 2002. Tók vélstjórapróf 1930, og skipstjórapróf 1933. Var vélstjóri hjá föður sínum á m/b Vini 1931-1937 og á Haföldu 1938-1939. Tók þá við formennskunni og var með Haföldu til 1944. Var vélstjóri á Ver 1945, og flutti svo til Reykjavíkur.

Í formannavísum Lofts Guðmundssonar 1944 kvað hann um Ögmund:

Ögmundur við unnarkoss
ekki er á leiðum smeykur
er byrinn hvass og hrannafoss
við Hafölduna leikur.

Heimildir

Gísli Eyjólfsson frá Bessastöðum

Önnur umfjöllun á Heimaslóð: Ögmundur Friðrik Hannesson.