Þuríður Högnadóttir (Kornhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. mars 2022 kl. 12:07 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. mars 2022 kl. 12:07 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þuríður Högnadóttir húsfreyja í Kornhól fæddist 1767 og lést 12. september 1801 úr „flogaveiki“.
Móðir hennar var Halldóra Ólafsdóttir, f. 1722.

Þuríður var í Köldukinn, Kvennabrekkusókn, Dal. 1783, var vinnukona á Barkarstöðum, Staðarbakkasókn, V-Hún. 1787, vinnukona á Borðeyri, Prestsbakkasókn, Strand. 1789, var barnsmóðir bónda á sama stað, 1790.
Hún var tugthúslimur á Bæ, sömu sókn, 1791, tugthúslimur í Tugthúsinu, Reykjavíkursókn, Gull. 1792. Hún var húskona í Hólakoti, Reykjavíkursókn, Gull. 1797, húsfreyja á Kornhólsskansi, Ofanleitissókn,

Aðfaranótt 10. febrúar 1790 var framið rán á Miðhúsum (sjá Miðhúsaránið). Var Bjarni Björnsson bóndi á Vilborgarstöðum talinn viðriðinn það og var dæmdur til þriggja ára fangavistar í Reykjavík 13. júlí 1791.
Þar kynntist hann Þuríði Högnadóttur, sem dæmd hafði verið fyrir fjögur frillulífsbrot, þ.e. barneignir án hjónabands.
Að lokinni vist bjuggu þau saman í Hólakoti í Reykjavík.
Bjarni æskti skilnaðar við konu sína Ingibjörgu Hreiðarsdóttur vegna hórdómsbrots hennar, en hún hafði eignast barn með Páli Guðmundssyni á Vilborgarstöðum 1792. Fékk hann skilnað frá henni 16. júlí 1798.

I. Barnsfaðir Þuríðar var Sigurður Hrómundsson bóndi á Bugðustöðum í Hörðudal, f. 1743.
Barn þeirra:
1. Guðrún Sigurðardóttir, f. 15. apríl 1783, d. 1784.

II. Barnsfaðir þriggja barna hennar var Jón Guðnason bóndi í Núpsdalstungu í Miðfirði, síðar á Borðeyri í Hrútafirði, f. um 1751.
Börn þeirra:
2. Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1788 á Borðeyri, d. 10. júní 1848.
3. Jón Jónsson, f. 1790. Hann var á Kornhólsskansi 1801.
4. Jóhanna Jónsdóttir, f. 1791, d. 1791.

IV. Barnsfaðir Þuríðar var Einar Þorvaldsson skósmiður í Reykjavík, f. 1762, d. 16. ágúst 1805 í Reykjavík.
Barn þeirra var
5. Jónas Einarsson Vestmann bátsformaður, f. 20. október 1797 í Reykjavík, d. 1834 í Þurflingsslysinu.

V. Maður Þuríðar í Eyjum, (14. maí 1799), var Bjarni Björnsson, síðar á Miðhúsum, f. 1752, d. 23. nóvember 1827.
Þau fluttust fljótlega til Eyja og bjuggu í Kornhól. Börn Þuríðar fylgdu þeim til Eyja. Sonur hennar Jónas Einarsson, síðar Vestmann varð síðar formaður á Þurfalingi og lést eftir að bátnum hlekktist á í Leiðinni 5. mars 1834.
Börn þeirra hér:
1. Kristján Bjarnason, f. 30. janúar 1800, d. 5. febrúar 1801 úr ginklofa.
Stjúpbörn Bjarna, börn Þuríðar:
2. Jóhanna Jónsdóttir húsfreyja á Vilborgarstöðum, f. 1788, d. 10. júní 1848.
3. Jón Jónsson, f. 1792, hrapaði úr Elliðaey 1805.
4. Jónas Einarsson Vestmann formaður, f. 1798, d. 1834 í Þurfalingsslysinu.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.