Jón Guðrúnarson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. febrúar 2023 kl. 14:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. febrúar 2023 kl. 14:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Guðrúnarson Jónsson vinnumaður fæddist 13. nóvember 1843 og lést 6. maí 1876.
Móðir hans var Guðrún Guðmundsdóttir frá Steinmóðshúsi, f. 25. ágúst 1822, og Jón Jónsson, þá vinnumaður í Ólafshúsum. Jón neitaði faðernini. Jón yngri var því nefndur Guðrúnarson eða Guðrúnarson Jónsson í sóknarmannatölum, en þó stundum Jón Jónsson..

Jón var á fyrsta ári með móður sinni í Steinmóðshúsi 1843. Hann var þriggja ára með móður sinni hjá Sighvati Þóroddssyni ekkli í Helgahjalli 1845, með móður sinni hjá Elínu ömmu sinni í Steinmóðshúsi 1847-1853, með vinnukonunni móður sinni á Oddsstöðum 1854, með henni í Steinmóðshúsi 1855 og 1856, 14 ára hjá Elínu ömmu sinni 1857 og enn 1865.
Hann var vinnumaður í Garðinum 1867, vinnumaður á Vilborgarstöðum 1870, á Vesturhúsum 1871, á Löndum 1872, í Vanangri 1873 og 1874, í Kokkhúsi 1875.
Jón var ókvæntur og barnlaus.
Hann lést 1876 „af völdum ofdrykkju“.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.