„Halla Bjarnadóttir (Svaðkoti)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Halla Bjarnadóttir''' húsfreyja frá Svaðkoti fæddist 2. nóvember 1878 og lést 25. desember 1930.<br> Foreldrar hennar voru [[Bjarni Ólafsson (Svaðkoti)|Bjarni Ólafsso...)
 
m (Verndaði „Halla Bjarnadóttir (Svaðkoti)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 8. júní 2015 kl. 19:01

Halla Bjarnadóttir húsfreyja frá Svaðkoti fæddist 2. nóvember 1878 og lést 25. desember 1930.
Foreldrar hennar voru Bjarni Ólafsson bóndi, f. 22. janúar 1836, drukknaði 16. júní 1883, og kona hans Ragnheiður Gísladóttir húsfreyja, f. 28. september 1833, d. 7. júlí 1911.

Halla var með foreldrum sínum meðan beggja naut við. Faðir hennar drukknaði, er hún var á fimmta ári. Hún var með móður sinni.
Hún fluttist til Reykjavíkur 1900.
Halla giftist Þórði 1905. Synir þeirra tveir voru með þeim í Reykjavík 1910 og 1920.
Þórður dó 1947 og Halla 1952.

Maður Höllu, (1905), var Þórður Guðmundsson sjómaður, f. 13. maí 1876, d. 4. janúar 1947.
Börn þeirra hér:
1. Þorbjörn Þórðarson málarameistari og myndlistarmaður, f. 14. maí 1907, d. 5. október 1976.
2. Guðjón Þórðarson, f. 6. nóvember 1908, d. 9. mars 1939.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Íslenskir málarar - Saga og málaratal. Kristján Guðlaugsson. Málarameistarafélag Reykjavíkur 1982.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.