„Margrét Vigfúsdóttir (Gerði)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Margrét Vigfúsdóttir''' vinnukona fæddist 4. febrúar 1853 á Bryggjum í A-Landeyjum.<br> Foreldrar hennar voru Vigfús Magnússon tómthú...) |
m (Verndaði „Margrét Vigfúsdóttir (Gerði)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 8. maí 2015 kl. 16:57
Margrét Vigfúsdóttir vinnukona fæddist 4. febrúar 1853 á Bryggjum í A-Landeyjum.
Foreldrar hennar voru Vigfús Magnússon tómthúsmaður, sjómaður í Presthúsum og síðar í Hólshúsi, f. 9. október 1815 lést af vosbúð á skipinu „Ægi“ í Útilegunni miklu 25. febrúar 1869.
Móðir Margrétar var Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. janúar 1827, d. 13. maí 1882.
Bræður Margrétar í Eyjum voru:
1. Sigurður Vigfússon, (Siggi Fúsa).
2. Magnús Vigfússon.
Föðursystir hennar var
3. Sigríður Magnúsdóttir húsfreyja í Brekkuhúsi.
Margrét var tökubarn á Bryggjum hjá Sigurði Ögmundssyni og Sigríði Magnúsdóttur föðursystir sinni 1860, vinnukona þar 1870, fluttist með þeim úr Landeyjum að Brekkuhúsi 1879, var þar vinnukona á því ári og ól Þorgerði í júní. Hún var vinnukona í Garðinum 1880, en Þorgerður var tökubarn í Þorlaugargerði, vinnukona á Gjábakka 1881 með Þorgerði hjá sér, með hana hjá sér í Frydendal 1882, þar með hana 1883 og nú „mormóni“ ritað á blaðrönd, og enn 1884.
Þorgerður lést 1885 og Margrét fluttist úr Eyjum á því ári, en ekki var skráð hvert.
I. Barnsfaðir Margrétar var Sigurður Sigurðsson vinnumaður frá Snotru í Landeyjum.
Barn þeirra var
1. Þorgerður Sigurðaróttir, f. 27. júní 1879, d. 20. mars 1885.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.