„Guðjónína Gunnsteinsdóttir“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Guðjónína Gunnsteinsdóttir''' (einnig ritað Guðjónía) ráðskona, síðast búsett í Garðsauka, fæddist 12. apríl 1887 í Mýrdal og lést 14. september ...) |
m (Verndaði „Guðjónína Gunnsteinsdóttir“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 26. apríl 2015 kl. 21:06
Guðjónína Gunnsteinsdóttir (einnig ritað Guðjónía) ráðskona, síðast búsett í Garðsauka, fæddist 12. apríl 1887 í Mýrdal og lést 14. september 1965 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Gunnsteinn Jónsson sjómaður í Hólshúsi, f. 10. október 1859, d. 8. október 1892, og
Sigríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 3. september 1861, d. 5. júni 1949.
Guðjónína fluttist úr Mýrdal að Hólshúsi með foreldrum sínum á 1. ári.
Hún ólst upp í Hólshúsi með foreldrum sínum meðan faðir hennar lifði og síðan með móður sinni til 1894.
Hún var flutt 8 ára frá Hólshúsi „á Land“ (svo í skránni), var léttastúlka í Syðstu-Mörk u. V-Eyjafjöllum 1901, „aðkomandi“ í Seli í Landeyjum 1910, en heimili í Breiðholti, vinnukona á Lundi 1920.
Guðjónína var lengi ráðskona hjá Árna Jónssyni í Garðsauka.
Hún lést 1965, þá til heimilis í Garðsauka.
Guðjónína var ógift og barnlaus í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Garður.is.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.