„Margrét Sæmundsdóttir (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Margrét Sæmundsdóttir''' á Gjábakka fæddist 1787 á Sámsstöðum í Fljótshlíð og lést 6. október 1842 á Gjábakka.<br> Foreldrar hennar voru Sæmundur b...)
 
m (Verndaði „Margrét Sæmundsdóttir (Gjábakka)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 26. mars 2015 kl. 21:54

Margrét Sæmundsdóttir á Gjábakka fæddist 1787 á Sámsstöðum í Fljótshlíð og lést 6. október 1842 á Gjábakka.
Foreldrar hennar voru Sæmundur bóndi á Vestustu-Sámsstöðum 1801, f. 1752, Jónsson og kona hans Jódís húsfreyja, f. 1755 í Finnshúsum í Fljótshlíð, d. 18. ágúst 1821 á Götum í Mýrdal, Jónsdóttir.

Margrét var systir Sigríðar Sæmundsdóttur húsfreyju á Gjábakka.

Margrét var með foreldrum sínum á Vestustu Sámsstöðum 1801, var vinnukona á Sámsstöðum 1816, húskona þar 1835.
Hún var bústýra hjá Jóni Einarssyni eldri, ekkli á Gjábakka 1836 og enn 1837, líklega til dd. hans í mars 1838.
Margrét var í heimili hjá Sigríði systur sinni 1838-dd. 1842.
Hún var ógift og barnlaus í Eyjum.


Heimildir