„Breiðablik“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Bætti við texta.)
mEkkert breytingarágrip
Lína 21: Lína 21:
{{Heimildir|
{{Heimildir|
* Guðjón Ármann Eyjólfsson, Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík, 1973.
* Guðjón Ármann Eyjólfsson, Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík, 1973.
* ''Bárustígur''. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu ''Húsin í götunni''. Vestmannaeyjar, 2004.}}
* ''Breiðabliksvegur''. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu ''Húsin í götunni''. Vestmannaeyjar, 2004.}}


[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 15. maí 2006 kl. 11:11

Breiðablik.

Húsið Breiðablik stendur við Breiðabliksveg 5. Húsið var áður skráð á Kirkjuveg 45. Breiðablik var byggt árið 1908 fyrir Gísla J. Johnsen, kaupmann og útgerðarmann eftir teikningum Sveins Jónssonar, arkitekts. Breiðablik var fyrsta hús í Eyjum með vatnssalerni og sagt er að yfirsmiður hússins hafi harðneitað að hafa kamar inni í húsi og ekki látið sig fyrr en honum var leyft að smíða einnig útikamar við húsið.

Iðnaðarmannafélag Vestmannaeyja átti húsið lengi og var þar m.a. starfræktur kvöldskóli.

Frá árinu 1963 var þar til húsa Stýrimannaskólinn í Vestmannaeyjum. Í gosinu 1973 voru öll siglinga- og fiskileitartæki skólans send upp á meginlandið með strandferðaskipinu Heklu.

Breiðablik kom talsvert við sögu í sjónvarpsþáttum Þráins Bertelssonar „Sigla himinfley“ en húsið var sýnt sem heimili útgerðarmannsins í þeim þáttum.

Í Breiðabliki bjó 2006 Hartmann Ásgrímsson tannlæknir ásamt konu og börnum.

Eigendur og íbúar

  • Gísli Johnsen og fjölskylda
  • Ástþór Matthíasson
  • Gísli Friðriksson
  • Guðni Þorsteinsson 1965
  • Jón Hallvarðsson
  • Einar Illugason
  • Gísli Hjörleifsson
  • Carl Ólafur Granz
  • Hartmann Ásgrímsson

Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson, Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík, 1973.
  • Breiðabliksvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.