„Christian Jakob Kemp (Godthaab)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Christian Jakob Kemp''' verslunarstjóri í Godthaab fæddist 1802.<br> Hann kom til Eyja frá Kaupmannahöfn 1833, en kona hans og tvö börn 1834. Með konu hans komu [[Mada...)
 
m (Verndaði „Christian Jakob Kemp (Godthaab)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 22. febrúar 2015 kl. 13:19

Christian Jakob Kemp verslunarstjóri í Godthaab fæddist 1802.
Hann kom til Eyja frá Kaupmannahöfn 1833, en kona hans og tvö börn 1834. Með konu hans komu Ane Johanne Grüner þjónustustúlka, síðar nefnd Madama Roed í Frydendal, og Johanne Ludvike Kemp systir verslunarstjórans.

Hjónin eignuðust 4 börn í Eyjum, en misstu tvö þeirra úr ginklofa og eitt barn 5 mánaða úr „krampa“, líklega ginklofi.
Þau munu hafa flust frá Eyjum 1839. Á því ári var Jess Thomsen Christensen orðinn verslunarstjóri í Godthaab.

Kona Christians Jakob Kemp var Erasmine Elisabeth Kemp húsfreyja, f. 1802.
Börn þeirra hér:
1. Gyrette Kemp, f. 1831.
2. Christian Kemp, f. 1832.
Börn þeirra fædd í Eyjum voru
3. Frederik Kemp, f. 29. janúar 1835, d. 19. febrúar 1835 úr ginklofa.
4. Doris Kemp, f. 8. október 1836, á lífi 1838.
5. Helge Kemp, f. 1. september 1837, d. 5. október 1837 úr ginklofa.
6. Thora Elisabeth Kemp, f. 4. september 1838, d. 7. febrúar 1839 úr „krampa“, líklega ginklofi.


Heimildir