„Jóhanna Jónsdóttir Abel (Godthaab)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Jóhanna Jónsdóttir Abel''' húsfreyja í Godthaab fæddist 4. júni 1819.<br> Faðir hennar var Jón verzlunarstjóri á Vopnafirði, bóndi í Ási í Kelduhverfi í N-Þi...)
 
m (Verndaði „Jóhanna Jónsdóttir Abel (Godthaab)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 13. ágúst 2014 kl. 21:09

Jóhanna Jónsdóttir Abel húsfreyja í Godthaab fæddist 4. júni 1819.
Faðir hennar var Jón verzlunarstjóri á Vopnafirði, bóndi í Ási í Kelduhverfi í N-Þing., verzlunarstjóri í Höfðakaupstað á Skagaströnd og kaupmaður í Kúvíkum í Reykjarfirði í Strand., f. 1771 í Stafafellssókn í Lóni, A-Skaft., d. 27. júlí 1846, Salómons bónda í Vík í Lóni, líklega afabarns Árna b. á Geithellum, Hjörleifssonar.
Móðir Jóhönnu og seinni kona Jóns verzlunarstjóra var Sigríður húsmóðir, síðar húskona í Bæ í Hrútafirði, Strand. og bústýra í Víðidalstungu í Víðidal, V-Hún., f. 1789 í Munkaþverársókn í Eyjafirði, d. 6. des. 1859, Benedikts bónda á Dvergstöðum í Grundarsókn í Eyjafirði 1801, f. 1759, Þorvaldssonar og konu Benedikts, Sigríðar húsmóður, f. 1756, Sigurðardóttur.

Jóhanna átti þrjú systkini í Eyjum. Þau voru:
1. Jón Salomonsen lóðs og verslunarstjóri, f. 1830, d. 5. nóvember 1872.
2. Sigríður Jónsdóttir Bjarnasen húsfreyju í Kornhól, f. 1816, d. 13. apríl 1842.
3. Ragnheiður Jónsdóttir húsfreyja á Ofanleiti, f. 27. júní 1829, d. 11. ágúst 1921.

Jóhanna, (Joh. J. Salomonsen) var bústýra 1843 hjá Jóhanni Bjarnasen verslunarstjóra, mági sínum, en hann var þá orðinn ekkill.
Þau Jens Christian Thorvald Abel giftust 1844.
Hann var höndlunarþjónn í Godthaab við giftingu, varð eigandi verslunarinnar ásamt Jens Thomsen Christensen 10. júní 1847.
Jóhanna bjó í Stakkagerði við fæðingu yngsta barnsins 1859, en var komin í Garðinn við brottför frá Eyjum 1860.
Hún eignaðist 5 börn í Eyjum. Elsta barnið dó á öðru árinu.
Þau Thorvald fluttust með fjölskylduna til Kaupmannahafnar 1860.
Jóhanna og Jens Christian höfðu tekið í fóstur Ágústu Bjarnasen, þegar faðir hennar Jóhann Bjarnasen lést, en hún var systurdóttir Jóhönnu, dóttir Sigríðar. Hún fylgdi þeim til Danmerkur, þá 19 ára. Heimildir segja hana hafa farið til Ameríku.

Maður Jóhönnu, (30. ágúst 1844), var Jens Kristján Thorvald Abel kaupmaður í Godthaab, nefndur Torvald Abel í Eyjum, f. 24. maí 1823 á Vesturhúsum.
Börn þeirra hér:
1. Dideriche Johanne Sigríður Abel, f. 4. september 1844 í Godthaab, d. 29. júlí 1846. (Fæðingar hennar er einungis getið í karlaskrá).
2. Johan Jes Abel, f. 17. september 1848 í Godthaab.
3. Didrikke Jensine Augusta Abel, f. 13 janúar 1851 í Godthaab.
4. Jóhanna Björg Þóra Sigríður Abel, f. 10. febrúar 1856 í Godthaab.
5. Jonine Ragnheiður Kristine Abel, f. 23. febrúar 1859 í Stakkagerði.
Fósturdóttir þeirra var
6. Augusta Bjarnasen, f. 23. ágúst 1841.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Gamalt og nýtt. Útgefandi: Einar Sigurðsson. Vestmannaeyjum 1949-1952.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.