„Steinunn Þorsteinsdóttir (Kastala)“: Munur á milli breytinga
(Ný síða: '''Steinunn Þorsteinsdóttir''' vinnukona frá Kastala fæddist 22. september 1862 og lést 7. febrúar 1927 í Vesturheimi.<br> Foreldrar hennar voru [[Þorsteinn Jón...) |
m (Verndaði „Steinunn Þorsteinsdóttir (Kastala)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
(Enginn munur)
|
Útgáfa síðunnar 30. júlí 2014 kl. 16:49
Steinunn Þorsteinsdóttir vinnukona frá Kastala fæddist 22. september 1862 og lést 7. febrúar 1927 í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Jónsson tómthúsmaður og ekkill í Kastala, f. 27. júlí 1833, drukknaði 1863, og Guðrún Jónsdóttir, þá í Kastala, ekkja eftir Hjálmar Filippusson, f. 21. apríl 1825, d. 2. júní 1890.
Steinunn var með foreldrum sínum í Kastala 1862, niðursetningur ásamt móður sinni þar 1863, niðursetningur þar 1864 og enn 1870 hjá Arndísi Jónsdóttur.
Steinunn var vinnukona í Jónshúsi 1880 og við fæðingu Sigmundar 1883. Hún var á Gjábakka við brottför til Vesturheims 1886.
Barnsfaðir hennar var Gísli Gíslason Brynjólfssonar, en hann var þá í Jónshúsi, f. 1847, d. 1. desember 1910.
Barn þeirra var
1. Sigmundur Gíslason, f. 29. október 1883, fór til Vesturheims, d. 31. mars 1965.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.