„Guðmundur Eyjólfsson (Þorlaugargerði)“: Munur á milli breytinga
m (Verndaði „Guðmundur Eyjólfsson (Þorlaugargerði)“ ([edit=sysop] (ótiltekinn))) |
Ekkert breytingarágrip |

Lína 7: | Lína 7: | ||
Guðmundur var tvíkvæntur.
| Guðmundur var tvíkvæntur.

I. Fyrri kona hans var [[Þorgerður Einarsdóttir (Þorlaugargerði|Þorgerður Einarsdóttir]] húsfreyja frá Svínhaga á Rangárvöllum, f. (1723).
| I. Fyrri kona hans var [[Þorgerður Einarsdóttir (Þorlaugargerði)|Þorgerður Einarsdóttir]] húsfreyja frá Svínhaga á Rangárvöllum, f. (1723).

Börn þeirra hér:
| Börn þeirra hér:

1. [[Brynhildur Guðmundsdóttir (Þorlaugargerði)|Brynhildur Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 1752.
| 1. [[Brynhildur Guðmundsdóttir (Þorlaugargerði)|Brynhildur Guðmundsdóttir]] húsfreyja, f. 1752.

Útgáfa síðunnar 30. júní 2014 kl. 15:26
Guðmundur Eyjólfsson í Þorlaugargerði, bóndi, bátasmiður, kirkjusmiður, kóngssmiður kallaður, fæddist 1723 og drukknaði 1784.
Foreldrar hans voru Eyjólfur Þorsteinsson bóndi í Uppsölum í Hvolhreppi 1729, f. 1689, og kona hans Helga Bjarnhéðinsdóttir húsfreyja, f. 1685.
Guðmundur naut mikils álits sem smiður. Hann smíðaði kirkjuna á Breiðabólsstað í Fljótshlíð. Einnig var hann fordsmiður við fyrstu byggingu Landakirkju á núverandi stað, en yfirsmiður var Kristófer Berger, þýskur maður.
Stóð smíðinn yfir frá 1774-1778.
Guðmundur smíðaði konungsbáta, sem einnig voru kallaðir innstæðubátar á 18. öld. Voru þeir smiðir, sem þá smíðuðu, kallaðir kóngssmiðir.
Guðmundur var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans var Þorgerður Einarsdóttir húsfreyja frá Svínhaga á Rangárvöllum, f. (1723).
Börn þeirra hér:
1. Brynhildur Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1752.
2. Sr. Bjarnhéðinn Guðmundsson prestur á Kirkjubæ, f. um 1754, d. 20. október 1821.
3. Sr. Einar Guðmundsson prestur í Noregi, f. um 1758, d. 2. desember 1817.
4. Sveinn Guðmundsson bóndi í Þorlaugargerði, f. 1764, d. 5. nóvember 1832.
II. Síðari kona Guðmundar var Valgerður Þorleifsdóttir húsfreyja frá Eyvindarholti u. Eyjafjöllum, f. 1728.
Barn þeirra var
5. Helga Guðmundsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum, f. 1767, d. 30. desember 1846.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
- Manntöl.
- Saga Vestmannaeyja. Sigfús M. Johnsen. Ísafoldarprentsmiðja h.f. 1946.
- Ættartölubækur Jóns Espólíns, p. 6313.