„Árni Jónsson (Görðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Árni Jónsson (Görðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 20. maí 2014 kl. 18:25

Árni Jónsson í Görðum, fæddist í Garðakoti í Mýrdal 5. maí 1874 og lést í Eyjum 8. ágúst 1954.
Foreldrar hans voru Jón Árnason, f. 1840, og k.h. Guðríður Eyjólfsdóttir, f. 1842. Þau voru einnig foreldrar Friðriks Jónssonar á Látrum og Ólafs Jónssonar á Landamótum.
Árni var hjá foreldrum sínum í Pétursey 1890, hjá þeim á Eyjarhólum 1901 og fluttist þaðan til Eyja 1907.
Hann vann þar við sjómennsku, var formaður á vélbát 1910, varð meðeigandi bræðra sinna Friðriks og Ólafs og fleiri, að Íslendingi VE-161 1912.
Kona Árna (1910) var Kristín Ögmundsdóttir húsfreyja, f. 1885.
Hjá þeim í Görðum 1910 er Guðrún Jónsdóttir systir Árna, en 1920 voru m.a. hjá þeim Guðríður móðir Árna, Helga Benediktsdóttir móðir Kristínar húsfreyju og Jakob Benediktsson stjúpfaðir Kristínar.
Þar voru tvö börn: Haukur L. Johnsen 6 ára og Sigurjóna Ólafsdóttir 4 ára. Þau voru fósturbörn hjónanna.


Heimildir